Alt Heidelberg

Óðinn S. Geirdal (1907-1993), Baldur Ólafsson (1933-2009) og Alfreð Einarsson (1923-2011) Leikritið var sýnt á árunum 1958-1959. Alt Heidelberg eftir Wilhelm Meyer-Förster. Þýðandi Freysteinn Gunnarsson. Leikritið gerist á 19. öld. Þegar erfðaprins nokkur kemur til náms í Heidelberg fer allt í uppnám, ekki síst hjá vertinum sem á að hýsa hinn tigna stúdent. Fljótlega heillast prinsinn af áhyggjulausu lífi stúdentanna og þá ekki síður af stúlku sem vinnur hjá gestgjafa hans. Hann hellir sér út í skemmtanalífið, en verður frá að hverfa þegar furstinn deyr og skyldan kallar.

Nr: 14664 Ljósmyndari: Árni Böðvarsson Tímabil: 1960-1969 arb00928