Húsmæðranámskeið

Húsmæðranámskeið á Akranesi 1926. Þetta var 6 vikna matreiðslunámskeið sem var haldið í sumarhúsi Haraldar Böðvarssonar útgerðarmanns á Breiðinni.
Námskeiðinu stýrði Bryndís Guðmundsdóttir frá Nýjabæ á Seltjarnarnesi.
Efri röð frá vinstri: Lára Guðmundsdóttir á Ólafsvöllum, Guðrún Einarsdóttir (1906-1985) á Bakka, Bryndís Guðmundsdóttir stjórnandi (frá Nýjabæ á Seltjarnarnesi), Guðrún Ásmundsdóttir (1904-1998) í Lambhúsum og Sveinbjörg Sveinsdóttir (1902-1969) á Akri
Fremri röð frá vinstir: Helga Kristmannsdóttir í Albertshúsi, Ragnheiður Björnsdóttir (1904-1996) á Bakka, Ólafía Þorvaldsdóttir (1908-1947) á Valdastöðum og Lovísa Jónsdóttir á Stað

Efnisflokkar
Nr: 52020 Ljósmyndari: Árni Böðvarsson Tímabil: 1900-1929 arb02146