Akraneskirkja 1922

Kór kirkjunnar um 1922 en þá hafði Haraldur Böðvarsson útgerðarmaður lagt kirkjunni til yfirklæði á knéðbeð fyrir framan og til hliðar við gráturnar. Vinstra megin við altaristöflu hangir minningarskjöldur um sr. Jón A. Sveinsson og til hægri handar minningartafla sr. Hannesar Stephensen sem áður var í Garðakirkju. Á myndinni má einnig sjá fjóra af olíulömpunum frá Thor Jensen og konu hans.

Nr: 31361 Ljósmyndari: Árni Böðvarsson Tímabil: 1900-1929