Norðurá í Norðurárdal í Borgarfirði

Norðurá er bergvatnsá í Norðurárdal. Hún á upptök sín í Holtavörðuvatni á Holtavörðuheiði og renna margir lækir og ár í hana. Norðurá rennur um Norðurárdal uns hún sameinast Hvítá um 5,6 km frá sjó. Vatnasvið Norðurár er 518 km og lengd hennar frá Holtavörðuvatni að ósi í Hvítá er tæpir 61 km. Í Norðurá eru fossarnir Laxfoss og Glanni. Halli árinnar er mjög lítill upp að Sanddalsá ef undan er skilið svæðið milli Laxfoss og Glanna. Þegar Grábrókarhraun rann til austurs frá Grábrók fyrir um 3000 árum stíflaði hraunið Norðurá. Þá myndaðist stöðuvatn í dalnum sem smám saman fylltist af framburði árinnar. Áin gróf sig svo með tímanum í gegnum hraunhaftið. Mikil laxveiði er í Norðurá og þar eru einnig urriði og bleikja. Texti af Wikipedi

Efnisflokkar
Nr: 48350 Ljósmyndari: Jóhannes Gunnarsson Tímabil: 1990-1999