Skátar á ferð upp í Hákot

Ferð í Hákot um vor. Fengin var að láni kerra hjá Slökkviliði Akraness og gengu þeir með hana upp í Hákot. Gengið var upp með Leiránni. Hér hefur Guðjón Bjarnason, faðir Sigurðar komið með hlut sem gleymdist. Frá vinstri: Jón Ármann Einarsson (1946-), Magnús Oddsson (1947-), Einvarður Rúnar Albertsson (1947-2000) og Sigurður Guðjónsson (1942-).

Efnisflokkar
Nr: 52670 Ljósmyndari: Þjóðbjörn Hannesson Tímabil: 1960-1969 þjh00505