Magnús Stephensen (1836-1917) frá Höfðabrekku í Mýrdal. Stúdentspróf frá Lærðaskólanum árið 1855 og lögfræðipróf frá Hafnarháskóla 1862. Vann frá 1863 í hinni íslensku stjórnardeild í Kaupmannahöfn, varð 8. maí 1865 aðstoðarmaður þar. Annar yfirdómari og dómsmálaritari í landsyfirrétti 1870—1877, 1. yfirdómari 1877—1886. Jafnframt settur amtmaður í suður- og vesturamtinu frá 1. maí 1883 til 10. apríl 1886. Skipaður 10. apríl 1886 landshöfðingi, lausn 1904. Bjó síðan embættislaus í Reykjavík til æviloka. Aðstoðarmaður konungsfulltrúa Hilmars Finsens á Alþingi 1871 og 1873. Bæjarfulltrúi í Reykjavík 1874—1886. Skrifstofustjóri Alþingis hinn fyrsti 1875. Skipaður 1870 í landbúnaðarlaganefnd. Formaður mþn. í skattamálum 1875— 1877. Yfirskoðunarmaður landsreikninganna 1876—1885. Forseti Reykjavíkurdeildar Bókmenntafélagsins 1877—1884. Í verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar 1885—1887 og 1903—1905. Gæslustjóri Söfnunarsjóðs frá 1904 til æviloka. Kgk. alþingismaður 1877—1886, alþingismaður Rangæinga 1903—1908 fyrir Heimastjórnarflokkinn. Landshöfðingi 1886—1904. Texti af althingi.is