Þórhallur Bjarnarson

Þórhallur Bjarnarson (1855-1916) frá Laufási við Eyjafjörð. Hann lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum 1877 og guðfræðiprófi frá Kaupmannahafnarháskóla 1883. Hann var prestur í Reykholti og prófastur í Borgarfjarðarprófastsdæmi frá 1884, varð kennari við Prestaskólann 1885 og forstöðumaður hans 1894. Alþingismaður Borgfirðinga 1894-1900 og 1902-1908, fyrst utanflokka en síðan fyrir Heimastjórnarflokkinn. Einnig sat hann í bæjarstjórn Reykjavíkur 1888-1906. Árið 1908 var hann skipaður biskup yfir Íslandi og gegndi því embætti til dauðadags. Þórhallur bjó lengst af í Laufási við Laufásveg í Reykjavík og rak þar blómlegan búskap. Kona hans var Valgerður Jónsdóttir (1863-1913).

Nr: 31061 Ljósmyndari: Pétur Brynjólfsson [P. Brynjólfsson] Tímabil: Fyrir 1900 mmb00516