Gunnar Salómonsson

Gunnar Salómonsson (1907-1960) en oft nefndur Gunnar Úrsus var íslenskur aflraunamaður og sýningarmaður aflrauna á Íslandi og víða erlendis. Innan við tvítugt fór Gunnar að heiman og stundaði ýmis störf til lands og sjávar. Hann mun hafa stundað nám einn vetur við Hvítárbakkaskóla. Gunnar var búsettur í Reykjavík á árunum eftir 1930. Árið 1934 kom til Reykjavíkur þýskur aflraunamaður Jung Atlas, sem hafði hér sýrningar á þrautum sínum og heillaðist Gunnar mjög af afrekum hans og mun hafa hlotið hvatningu frá honum að reyna við aflþrautir. Árið 1936 fór Gunnar til Þýskalands í hópi íþróttamanna og kennara sem þá voru boðnir sem áhorfendur á ólympíuleika sem þá voru haldnir í Berlín. Eftir ólympíuleikina lá leið Gunnars til Kaupmannahafnar og þar réð hann sig til starfa hjá fjölleikaflokki og sýndi þrautir sínar með þeim í Kaupmannahöfn og víðar í Danmörku. Þar hófst hið eiginlega ævistarí Gunnars og að því hafði hann starfað í 23 ár er hann lést. Gunnar sýndi mest í Danmörku, en einnig í Noregi og Þýskalandi fyrir stríðið og gat sér orðstír fyrir þrautir sínar. Sagt er að fáir eða engir gætu leikið allar þrautir hans eftir honum. Eitt sinn tók Gunnar þátt í keppni aflraunamanna í Kaupmannhöfn og fór með sigur af hólmi. Á stríðsárunum 1939 – 1945 tók hann að sýna sjálfstætt og ferðaðist um alla Danmörku og viðar og eftir stríðið sýndi hann mest í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Texti af Wikipedia

Efnisflokkar
Nr: 53764 Ljósmyndari: Jón Kaldal Tímabil: 1930-1949