Heimaey VE 1

Loðnu dælt úr nótinni á Heimaey VE 1 í lok febrúar 2001 en þá gekk loðna vestan að og inn í Faxaflóa. Magnús Þór Hafsteinsson og Friðþjófur Helgason fegnu Pétur Þór Lárusson á Akranesi til að sigla með sig út á flóann með hraðbát sem hann átti og hét Háhyrningur. Þarna voru þeir daglangt við ljósmyndun og fréttaöflun, - mikið líf, mörg skip og hnúfubakar. Þegar komið að Heimaey var hún við að fylla. Þeir fóru um borð og tóku sjónvarpsviðtöl við karlanna fyrir fréttir RUV.

Efnisflokkar
Nr: 24328 Ljósmyndari: Magnús Þór Hafsteinsson Tímabil: 2000-2009 mth00094