Vallakirkja í Svarfaðardal

Vallakirkja er kirkja að Völlum í Svarfaðardal. Hún var byggð árið 1861 og er því elsta kirkjan í Svarfaðardal og Dalvíkurbyggð. Hún er úr timbri og turnlaus eins og hinar gömlu kirkjur dalsins. Kirkjugarðurinn er umhverfis kirkjuna. Núverandi prestur er Magnús Gamalíel Gunnarsson. Vallakirkju má ekki rugla saman við Valakirkju hjá Ingólfsfjalli. Framan við Vallakirkju er allmikið klukknaport sem jafnframt er sáluhlið að kirkjugarðinum. Klukknaportið var reist þegar gamall brottfluttur Svarfdælingur, Soffanías Þorkelsson frá Hofsá, gaf klukku eina mikla til kirkjunnar. Þetta var stærsta kirkjuklukka landsins og vóg nærri tvö tonn. Það var of mikill þungi fyrir hina öldnu kirkju svo að brugðið var á það ráð að reisa sérstaka byggingu fyrir klukkuna, sem er turn eða klukknaport yfir sáluhliðinu. Texti af Wikipedia

Efnisflokkar
Kirkja ,
Nr: 55336 Ljósmyndari: Karlotta Olga Nielsen Kristjánsdóttir Tímabil: 1950-1959