Lokahátíð sumarlesturs 2010

Húllum hæ hátíð Bókasafns Akraness var haldin á Safnasvæðinu að Görðum þann 12. ágúst 2010. Þar mættu þáttakendur í sumarlestri bókasafnsins til að gleðjast saman. Krakkarnir tóku þátt í ratleik og á þessari stöð bjuggu þau til pappírsþyrlur. Þyrlunum hentu þau svo á skotskífu til að skora stig.

Nr: 27999 Ljósmyndari: Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir Tímabil: 2010-2019