Halldora Olson og Siggeir Olson

Halldóra Guðmundsdóttir Olson (1854-1921) frá Elliðá í Staðarsveit í Snæfellsnessýslu og Siggeir Ólafsson (1850-1915) frá Krossum í Staðarsveit. Hún var dóttir hjónanna Guðmundar Stefánssonar og Önnu Sigurðardóttur. Þegar Halldóra var átta ára gömul féll móðir hennar frá og ólst hún þá upp eftir það hjá þeim hjónum Guðmundi Sigurðssyni móðurbróður sínum og Þorbjörgu Stefánsdóttur föðursystur sinni frá Borg í Miklaholtshreppi í Snæfellsnessýslu. Halldóra hafði áhuga á hjúkrunar- og læknisfræði og var sjálfmenntuð á því sviði. Þegar Halldóra var 20 ára gömul giftist hún herra Siggeiri Ólafssyni (1850-1915) frá Krossum í Staðarsveit, þann 28. september 1874. Eftir eins árs dvöl að Völlum í Staðarsveit á heimili brúðgumans, fluttu þau að Furubrekku í Miklaholtshreppi og bjuggu þar til 1886 þegar þau fóru til vesturheims, ásamt tveimur sonum sínum Þorgeiri Finnboga (1879-) og Ólafi (1883-1939). Fyrst settust þau að í Winnipeg, en árið 1889 flytja þau suður á Washington-eyju í Michiganvatni, þar sem Halldóra átti ættingja Árið 1890 fluttu þau til Duluthborgar í Minnesotafylki í Bandaríkjunum og bjuggu þar til æviloka. Halldóra fór að stunda ljósmóður og hjúkrunarstörf og tók hún á móti 3117 börnum. Þrátt fyrir að Halldóra væri ómenntuð veitti læknafélag Minnesota henni heimild til að starfa sem ljósmóðir í fylkinu. "Duluth News Tribune", dagsett 24. nóvember 1907, var sagt frá því sem Halldóra hafði áorkað í fylkinu. Synir hennar Ólafur Olson læknir í Duluth og Þorgeirs Finnbogi sem var aðalritstjóri blaðsins "Duluth Herald". Systkini hennar sem komust upp voru Þorgeir Lárus Guðmundsson (1853-1940), aktýgjasmiður í Árborg, Manitoba, Ólína Theodora Erlendson Bifröst Manitoba, Sveinn Guðmundsson kaupmaður á Akranesi og hálfsystir Anna Ottenson í River Park í Winnipeg.

Nr: 31462 Ljósmyndari: Frank E. Green (West Dulth Minnesota USA) Tímabil: Fyrir 1900