Minnismerki Jóns Vídalíns í Biskupsbrekku

Minnismerki um Jón Vídalín Skálholtsbiskup (1666-1720) reist á dánarstað hans í Biskupsbrekku við Hallbjarnarvörður á Kaldadal 8. okt. 1963. Talið frá vinstri: Biskup Íslands, séra Sigurbjörn Einarsson (1911-2008), sem vígði krossinn, Karl Auðunsson (1907-1981) bifreiðarstjóri á Akranesi, Jón Sigmundsson sparisjóðsgjaldkeri og gjaldkeri sóknarnefndar, sr. Sigurjón Guðjónsson prófastur og dr. Kristján Eldjárn Þórarinsson Eldjárn (1916-1982) þjóðminjavörður (í hvarfi við krossinn), Ingi Guðmonsson skipasmiður á Akranesi (smíðaði krossinn) og sr. Jón M. Guðjónsson (1905-1994). Á steininum fyrir neðan krossinn stendur "Hér andaðist meistari Jón Vídalín hinn 30. ágúst 1720".

Nr: 29222 Ljósmyndari: Gísli Gestsson Tímabil: 1960-1969