Meistaraleikur Steina Gísla

Frá vinstri: Óþekktur, Heimir Guðjónsson (1969-) og Alexander Högnason (1968-). Dómarinn sem snýr baki í myndavélina er Sævar Jónsson. Það var mikið um dýrðir á Akranesvelli þann 18. júní 2011 þegar stjörnum prýdd lið ÍA og KR mættu á góðgerðarleik til stuðnings Sigursteins Gíslasonar sem glímir við krabbamein. Eva Björk Ægisdóttir mætti á svæðið og festi stemninguna á mynd. Eva gaf Ljósmyndasafni Akraness góðfúslegt leyfi til að birta myndirnar.

Efnisflokkar
Nr: 31826 Ljósmyndari: Eva Björk Ægisdóttir Tímabil: 2010-2019