Gjáin í Þjórsárdal

Gjáin er gljúfur í Þjórsárdal með mörgum lindum og fossum. Stærsti fossinn heitir Gjáfoss (eða Gjárfoss). Í Gjánni rennur Rauðá sem sprettur upp í Rauðárbotnum milli Sandafells og Fossheiðar, miklu ofar á afréttinum. Hverfur hún síðan niður í sandinn á Hafinu svokallaða og kemur fram úr jörðinni aftur í Gjánni. Í Gjánni eru fallegar bergmyndanir, stuðlað hraun og móberg. Hraunið nefnist Þjórsárdalshraun og þekur allan dalbotninn neðan við Gjána. Það er hluti af stærra hrauni sem einu nafni nefninst Búrfellshraun og kom upp í gígaröð við Veiðivötn fyrir um 3000 árum. Ætihvönn og gróskumikill blómgróður vex við lindalækina í Gjánni. Bærinn Stöng í Þjórsárdal stendur við Rauðá neðan við Gjána. Texti af Wikipedia

Efnisflokkar
Nr: 35359 Ljósmyndari: Bragi Þórðarson Tímabil: 1960-1969