Bygging ratsjárstöðvar á Straumnesfjalli

Starfsmenn Sameinaðra verktaka reisa steypumót fyrir skálagrunn. Stöðvarhúsin voru reist úr steinsteyptum einingum af gerðinni Schokbeton sem flutt voru inn frá Hollandi. Bandaríska verktakasamsteypan Metcalf, Hamilton, Smith and Beck Companies var ráðin árið 1953 var til þess að leggja veg upp á Straumnesfjall við norðanverða Aðalvík og reisa ratsjárstöð varnarliðsins á fjallsnefinu Skorum nyrst á fjallinu. Byggði í Aðalvík og Sléttuhreppi lagðist af haustið 1952. Þrjár aðrar ratsjárstöðvar voru reistar fyrir varnarliðið á sama tíma á Miðnesheiði, Stokksnesi við Hornafjörð og heiðarfjalli á Langanesi. Byggingarfélögin Sameinaðir verktakar og Reginn hf. tóku við framkvæmdum sem undirverktakar sumarið 1955 en verkefnið færðist til Íslenskra aðalverktaka þegar Sameinaðir verktakar gengu inn í það félag árið 1957. Varnarliðið tók við fyrstu mannvirkjunum á Straumnesfjalli í árslok 1956 og ratsjárstöðin hóf eftirlit með flugumferð í janúar 1958. Starfsemi stöðvarinnar var hætt í sparnaðarskyni sumarið 1960. Byggingarframkvæmdir á Straumnesfjalli fóru að mestu fram að sumarlagi störfuðu þar þá jafnan um 150 – 200 íslenskir iðnaðar- og verkamenn auk nokkurra tuga bandarískara byggingarmanna fyrstu tvö árin. Myndirnar eru teknar sumarið 1955 og sýna byggingarframkvæmdir og íbúðarskála Sameinaðra verktaka á Skorum, nærliggjandi landsvæði og starfsmenn í skemmtiferð í Rekavík bak Látur. Texti: Friðþór Eydal.

Efnisflokkar
Nr: 43989 Ljósmyndari: Geir Valdimarsson Tímabil: 1950-1959