Víðir var smíðaður í skipasmíðastöð Þ&E á Akranesi 1943. Hann var í ferðum milli Akraness og Reykjavíkur um árabil jafnframt ferðum Laxfoss. Hann var seldur til Reykjavíkur og síðan til Djúpavogs, hét þar síðast Mánatindur SU 95 og var tekinn af skrá ónýtur 1965. Úr fréttablaðinu Akranes, 10.-12.tbl., 2.árg. 1943: „Víðir“, hið nýja skip h.f. „Víðis“, (sem á og gerir út togarann Sindra), er 103 tonn að stærð, eins og fyrr segir og hefur verið byggt hér í Dráttarbraut Þorgeirs Jósefssonar. Skipið er hið vandaðasta og traustasta að öllum frágangi og hið glæsilegasta. Það er byggt úr eik. Hefur 320 hk. Lister-Dieselvél, ennfremur er 20 hk. ljósavél af sömu gerð, og er skipið allt hitað með rafmagni, svo og er í því rafmagnseldavél frá Rafha í Hafnarfirði. Svefnklefar skipverja eru í framstafni. Þar fyrir aftan er allmikið farþegarúm, (því skipið er nú fyrst ætlað til fólks- og vöruflutninga, þó það væri upphaflega hugsað til fiskveiða). Teikningu af skipinu gerði Eyjólfur Gíslason úr Reykjavík og nemandi hans Magnús Magnússon frá Söndum. Eyjólfur var jafnframt yfirsmiður. Alla járnsmíði og niðursetningu véla annaðist Vélsmiðja Þorgeirs og Ellerts. Raflagnir Sveinn Guðmundsson rafvirki. Málningu Lárus Árnason málarameistari. Hampþéttingu alla annaðist Benedikt Tómasson skipstjóri á Akranesi. Bólstrun bekkja og þessháttar annaðist Runólfur Ólafsson bólstrari. Hurðir allar og glugga smíðaði Teitur Stefánsson trésmiður, en uppsetningu reiða annaðist Óskar Ólafsson úr Reykjavík.