Jón Baldvinsson (1882-1938) frá Strandseljum við Ísafjarðardjúp, Hann stundaði prentnám í Prentsmiðju Þjóðviljans á Ísafirði og á Bessastöðum árin 1897–1901 og starfaði svo sem prentari á Bessastöðum árin 1901–1905 og í Gutenberg í Reykjavík 1905–1918 og var formaður Hins íslenska prentarafélags 1913–1914. Hann var forstjóri Alþýðubrauðgerðarinnar í Reykjavík 1918–1930 og bankastjóri Útvegsbankans frá 1930 til æviloka en hafði setið Í bankaráði Landsbankans 1928–1930. Jón var forseti Alþýðusambands Íslands og formaður Alþýðuflokksins árin 1916–1938. Hann var bæjarfulltrúi í Reykjavík 1918–1924. Jón sat á Alþingi fyrir Reykvíkinga 1920–1926 en var landskjörinn þingmaður 1926–1938. Árin 1933–1938 var hann forseti sameinaðs þings. Hann var fyrsti flutningsmaður að frumvarpi til laga um hvíld sjómanna, sem voru kölluð vökulögin.