Fyrsta skurðgrafan sem kom til Íslands (Priestman Cub), kom til Akraness í maí 1942. Hún var m.a. lánuð Akranesbæ og notuð sem bryggjukrani við að landa fiski (veturinn 1943-44), er bátar komu úr róðrum. Gafst þetta ágætlega og þótti mikilsverð nýjung í vinnubrögðum. Í ummælum bæjarstjórans á Akranesi, Arnljótar Guðmundssonar, um þetta segir m.a. “Affermingin gekk meira en helmingi fljótar og mun fleiri bátar komust að bryggjunni. Þessi fljóta afgreiðsla hefur vafalaust aukið tölu róðra og er auðsætt að grafan hefur þannig aukið aflann á Akranesi þennan vetur.” Svo sagði bæjarstjórinn. Einn sá fyrsti til að stjórna gröfunni við landanirnar var Árni Breiðfjörð Gíslason í Lykkju. Skurðgrafan var flutt til landsins af Þórði Ásmundssyni, útgerðarmanni og Birni Lárussyni, bónda á Ósi, báðum á Akranesi.
Á myndinni má sjá gröfuna að störfum við löndun í Akraneshöfn.
Heimild: Ásmundur Ólafsson.