Á rakarastofunni árið 1996
Á þessari mynd er Ari Guðjónsson rakari (1914-1996) að klippa Guðjón Jóhannesson, f. 1949 á rakarastofu sinni að Njálsgötu 82 í Reykjavík. Guðjón er sonur Fjólu Guðbjarnadóttur frá Ívarshúsum og Jóhannesar Guðjónssonar frá Ökrum. Önnur mynd er til af þeim Ara og Guðjóni þar sem Ari er að klippa Guðjón árið 1954 á stofu sinni að Kirkjubraut 2 á Akranesi. Anna Sigurjónsdóttir, eiginkona Jóhannesar, tók myndina.
Hér má sjá myndina frá 1954.
Efnisflokkar
Nr: 29262
Tímabil: 1990-1999