Langanes

Langanesviti í Arnarfirði. Vitinn stendur innanvert við Arnarfjörð og er auðséður þótt smár sé vegna gula litarins sem er tilkominn vegna óska sjómanna sem þykir auðvelda að koma auga á vitana svona litla. Áður en vitinn var málaður gulur var hann húðaður með ljósu kvarsi. Langanesvitinn var byggður árið 1949 og er þessi steinsteypti smáviti, sem er aðeins 4,8 m að hæð, í hópi brúarvitanna þar sem ljóshúsið er innbyggt í vitahúsið. Axel Sveinsson verkfræðingur hannaði vitann. Gasljós var í vitanum frá byggingu hans fram til 1993 en þá var hann rafvæddur með sólarorku. Texti af sjominjar.is.

Efnisflokkar
Fjöll ,
Nr: 61144 Ljósmyndari: Þjóðbjörn Hannesson Tímabil: 1960-1969 þjh00129