Feðginin Sveinn, Petrea og Matthildur
Frá vinstri: Petrea Guðmundína Sveinsdóttir (1885-1954), Sveinn Guðmundsson (1859-1938) og Matthildur Sveinsdóttir (1890-1974).
27. júní 1936 hélt Sveinn Guðmundsson í ferð á æskuslóðir sínar í Staðarsveit en hann ólst upp á bænum Elliða. Hann hafði þá ekki séð átthagana frá árinu 1879. Með Sveini í ferðinni vour Petrea og Matthildur dætur hans, Árni Böðvarsson ljósmyndari, Jón Sigmundsson oddviti Ytri-Akraneshrepps og Magnús Gunnlaugsson en hann var bílstjóri ferðarinnar og átti bifreiðina. Hópurinn sneri heim úr ferðinni að kvöldi 28. júní.
Efnisflokkar
Nr: 48441
Tímabil: 1930-1949