Valgerður Helgadóttir
Valgerður Helgadóttir (1884-1905) frá Kringlu, drukknaði þann 16. september 1905 á leið frá Reykjavík til Akraness.
Systkinin frá Kringlu voru að koma heim, en þau voru Jón Helgason (28 ára), Gunnar Helgason (23ja ára), Ólafur Helgason (19 ára) og Valgerður Helgadóttir (22ja ára). Bræðurnir höfðu verið að vinna á skútu og Valgerður hafði verið í kaupavinnu í Gufunesi. Á sama skipi drukknuðu fimm aðrir ungir menn, m.a. þrír bræður frá Innsta-Vogi og Arndís Kristjánsdóttir frá Kirkjuvöllum. Suðvestan hvassviðri var þennan dag og gekk með skúrum. Skipið var sexæringur og fórst við Suðurflösina á Breiðinni.
Efnisflokkar