Sjómaðurinn á Akratorgi.

Styttan er á Akratorgi og er eftir Martein Guðmundsson (1905-1952). - Listaverkið var afhjúpað af Lilju Pálsdóttur við hátíðlega athöfn á sjómannadaginn árið 1967. Það var árið 1944 sem Marteinn mótaði frumkast sitt að höggmyndinni Sjómaðurinn. Nefnd, sem kjörin hafði verið til þess að reisa minnismerki sjómnna á Akranesi keypti verkið og lét stækka og steypa í eir í Noregi með stuðninig Akranesbæjar. Aðalhvatamaður að þessu verki var sr. Jón M. Guðjónsson, fyrrum sóknarprestur á Akranesi.

Nr: 4557 Ljósmyndari: Helgi Daníelsson Tímabil: 1970-1979 hed00595