Möðrudalskirkja

Möðrudalskirkja er í Valþjófsstaðaprestakalli í Múlaprófastsdæmi. Hún var byggð árið 1949. Jón A. Stefánsson (1880-1971), bóndi, reisti hana til minningar um konu sína, Þórunni Vilhjálmsdóttur, en hún andaðist árið 1944. Kirkjan er byggð á hinum forna grunni Möðrudalskirkju, en þar hafði þá ekki verið kirkja í 22 ár. Kirkjan var vígð 4. september 1949.

Efnisflokkar
Kirkja ,
Nr: 59665 Ljósmyndari: Jósef Þorgeirsson Tímabil: 1970-1979