Meistaraleikur Steina Gísla
ÍA menn f.v.: Gunnlaugur Jónsson (1974-), Ólafur Þórðarson (1965-), Karl Þórðarson (1955-), fyrir aftan Karl stendur Guðjón Þórðarson (1955-), Þórður Þórðarson (1973-) og fyrir aftan Þórð stendur Dean Edward Martin (1972-), Haraldur Ingólfsson (1970-), Bjarki Pétursson (1971-), Unnar Valgeirsson (1977-) og Stefán Þórðarson (1975-). Það var mikið um dýrðir á Akranesvelli þann 18. júní 2011 þegar stjörnum prýdd lið ÍA og KR mættu á góðgerðarleik til stuðnings Sigursteins Gíslasonar sem glímir við krabbamein. Eva Björk Ægisdóttir mætti á svæðið og festi stemninguna á mynd. Eva gaf Ljósmyndasafni Akraness góðfúslegt leyfi til að birta myndirnar.
Efnisflokkar
Nr: 31890
Tímabil: 2010-2019