Árekstur á Kirkjubraut

Þarna hefur Ford-bíll einhvers árans utanbæjarmanns ekið inn í hliðina á Opel Record bíl, og verið í fullum rétti til þess að auki, ef marka má þessa afstöðu. Myndin er tekin snemma á sjöunda áratugnum á Kirkjubraut á móts við Sjúkrahús Akraness. Fyrirtaks staður til að efna í umferðarslys. Lögreglumaðurinn fremst á myndinni til vinstri sýnist vera Guðmundur Rúnar Pétursson (1937-2006). Gatan er nýsteypt, kantar ófrágengnir og menn því naumast vanir akstri þarna.

Nr: 5831 Ljósmyndari: Helgi Daníelsson Tímabil: 1960-1969 hed00688