Sigríður Sigurðardóttir
Sigríður Kristín Sigurðardóttir (1903-1974) fædd í Melahúsum á Akranesi For.: Sigurður Jónsson sjóm. þar og k.h. Kristín Árnadóttir. Húsmóðir lengst í Bakkakoti, Suðurgötu 100, frá 1935 til dd. Var mikil félagsmálakona, söng í Kirkjukór Akraness frá 12 ára aldri, var í Kvennfélaginu, Slysavarnafélaginu og stúkunni Akurblóm. Í barnastúkuna gekk hún átta ára. Í öllum þessum félögum var hún sjálfkjörinn söngstjóri. Hún vann í mörg síðustu árin hjá H.B. & Co. M.: Jóhann B. Guðnason byggingafulltrúi. Börn: Ríkarður, f. 14. sept. 1926, bóndi, Gröf í Laxárdal, og Sveinn f. 13. febr. 1929, Verkam., Rvk.
Efnisflokkar