Landslið Íslands 1955
Landslið Íslands, sem lék gegn Bandaríkjamönnum á Melavellinum 3. júlí 1955. Leiknum lauk með sigri Íslands 3-2. Mörk Íslands skoruðu Þórður Þórðarson ÍA (1) og Gunnar Guðmannsson KR (2). Myndin er tekin í Íþróttahúsinu við Laugarbraut á Akranesi
Aftari röð frá vinstri: Gunnar Svanlaugur Guðmannsson (1930-2014) KR, Halldór Sigurbjörnsson(1933-1983) ÍA, Einar Halldórsson Val, Þórður Þórðarson (1930-2002) ÍA, Ríkharður Jónsson (1929-2017) ÍA. fyrirliði og Þórður Jónsson (1934-2018) ÍA.
Fremri röð frá vinstri: Sveinn Teitsson (1931-2017) ÍA, Hreiðar Ársælsson (1929-2015) KR, Helgi Biering Daníelsson (1933-2014) Val, Halldór Halldórsson Val, og Guðjón Finnbogason (1927-2017) ÍA.
Efnisflokkar