Njáll Guðmundsson skólastjóri

Kalda stríðið á Akranesi. Njáll skólastjóri er þarna að afhenda svo nefnda „Rauða kross pakka“, en það voru einhvers konar jólagjafir frá Bandaríkjamönnum ætlaðar fátækum börnum í þriðja heiminum, ellegar í þeim löndum þar sem stórþjóðin þurfti á því að halda að vinna hug og hjörtu, eignast trygga vini. Í pökkunum var margvíslegt smádót, t. d. glerkúlur („marbles“) til að nota í kúluspili, litlar skopparakringlur o.þ.u.l. Ennfremur höfðu pakkarnir að geyma svonefnd Jó-jó, sennilega þau fyrstu sem sáust á landinu. Þessum pökkum var einungis dreift til 12 ára barna í barnaskólanum í örfá ár. Þessi gjafaútdeiling átt sér stað fyrir kannski 2-4 jól. Myndin er frá árinu 1964, þegar Kalda stríðið er í algleymingi.

Nr: 3973 Ljósmyndari: Helgi Daníelsson Tímabil: 1960-1969 hed00047