Garðskagaviti

Hinn reisulegi Garðskagaviti, sem hannaður er af Axel Sveinssyni verkfræðingi, var byggður árið 1944 til að koma í stað eldri Garðskagavita sem þótti of lágur og einnig í hættu vegna landbrots. Hinn sívali kóníski steinsteyputurn er 28,6 m að hæð með ljóshúsi sem er ensk smíð. Vitinn var húðaður með ljósu kvarsi í upphafi en var kústaður með hvítu viðgerðar- og þéttiefni árið 1986.Í fyrstu voru notuð ljóstækin úr eldri Garðskagavitanum en árið 1946 var vitinn rafvæddur. Árið 1960 var skipt um linsu og í stað linsunnar frá 1897 var sett fjórföld snúiningslinsa.Garðskagi var einn þeirra vitastaða þar sem vitavörður hafði fasta búsetu og stóð svo fram til 1979. Vitavarðarhús stendur enn, byggt 1933 eftir teikningum Einars Erlendssonar arkitekts. Byggðasafn Gerðahrepps er starfrækt í útihúsum þeim sem tilheyrðu búi vitavarðarins.Texti af Sjóminjar.is

Efnisflokkar
Nr: 10024 Ljósmyndari: Hilmar Sigvaldason Tímabil: 2000-2009 his00465