Saurbær á Hvalfjarðarströnd

Hallgrímskirkja í Saurbæ (einnig þekkt sem Saurbæjarkirkja) er kirkja að Saurbæ á Hvalfjarðarströnd í Hvalfjarðarsveit. Kirkjan er helguð minningu Hallgríms Péturssonar en hann var sóknarprestur í Saurbæjarprestakalli á árunum 1651 til 1669. Guðjón Samúelsson teiknaði fyrstu gerð að kirkjunni og voru undirstöður steyptar eftir hans teikningu. Árið 1953 teiknuðu Sigurður Guðmundsson og Eiríkur Einarsson nýja kirkju. Kirkjan er steinsteypt og klædd múrsteini að innan. Þakið er koparklætt. Turninn er 20 metra hár. Gerður Helgadóttir gerði glerlistaverk kirkjunnar en verk hennar eru sótt í Passíusálmana. Finnski listamaðurinn Lennart Segerstråle gerði fresku sem er í stað altaristöflu. Á altari er róðukross sem talinn er frá því um 1500. Róðukrossinn var í kirkju Hallgríms á 17. öld. Texti af Wikipedia

Efnisflokkar
Kirkja ,
Nr: 61478 Ljósmyndari: Jóhannes Gunnarsson Tímabil: 1990-1999