Myndir frá Axelsbúð

Ökuskírteini Axels Sveinbjörnssonar, sennilega síðasta endurnýjun þess. Axel var þekktur fyrir að eiga fína bíla og átti einu sérlega flottan Lincoln Continental hvítan á lit. Bílinn keypti systir Axels í Ameríku. Guðjón Finnbogason var eitt sinn á ferð með Axel eldri í Reykjavík og sagðist aldrei hafa orðið eins hræddur í bíl. Á myndinni til hægri má sjá Axel Gústafsson.

Nr: 25532 Ljósmyndari: Ragnheiður Jósúadóttir Tímabil: 2000-2009