Jaðarsbærinn

Hér má sjá myndina í lit
Þetta er Jaðarsbærinn sem stóð á Jaðarsbökkum þar sem íþróttasvæði Akurnesinga er. Stór og mikill steinn er staðsettur þar sem jaðarsbærinn stóð. Síðasti ábúandi þar var Kristín Jónsdóttir, fædd 6. nóvember 1857, dáin 1. janúar 1947. Hún bjó þar til ársins 1933 en þá fluttist hún til dóttursonar síns Karls Auðunssonar, að Mánabraut 17 (Hét áður Baugastígur). Jaðarsbærinn var rifinn 1933.

Efnisflokkar
Fjöll ,
Nr: 28373 Ljósmyndari: Árni Böðvarsson Tímabil: 1930-1949